Krummavísur - Icelandic Folk song from 1861

Krummi svaf í klettagjá, kaldri vetrarnóttu á, verður margt að meini. Fyrr en dagur fagur rann freðið nefið dregur hann undan stórum steini. „Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor svengd er metti mína; ef að húsum heim ég fer heimafrakkur bannar mér seppi úr sorpi að tína.“ „Öll er þakin ísi jörð, ekki séð á holtabörð fleygir fuglar geta; en þó leiti út um mó, auða hvergi lítur tó; hvað á hrafn að eta?“ Á sér krummi ýfði stél, einnig brýndi gogginn vel, flaug úr fjallagjótum, lítur yfir byggð og bú, á bæjum fyrr en vakna hjú, veifar vængjum skjótum. Sálaður á síðu lá sauður feitur garði hjá, fyrrum frár á velli. „Krunk, krunk! nafnar, komið hér! krunk, krunk! því oss búin er krás á köldu svelli.“
Back to Top