Skálmöld - Narfi

NEW ALBUM OUT OCTOBER 26th 2012! Narfa ég hitti er nóttin var liðin, Niflheimahliðin. Kom hann í hnakki á kolsvörtum fola, kólnaði gola. Starði á okkur með stingandi augum, staðurinn umkringdur vofum og draugum. Þrek hans var búið og hugrekkið brostið, beit okkur frostið. Loki vill buga legg þinn og hug, lítið því duga vopn og vörn. Hlusti nú hver sem heyrir í mér: Hættuleg eru Loka börn. Hann þekkir staðinn sem hrímar og frystir, Hel er hans systir.
Back to Top